Fréttir

Lögreglan á Norðurlandi vestra – Vegna rjúpnaveiða

Hinar árlegu rjúpnaveiðar eru fram undan og veiðimenn bíða þess með tilhlökkun að komast til fjalla, njóta útiverunnar og takast á við þá áskorun sem rjúpnaveiðar fela í sér. Veiðitímabilið á Norðurlandi vestra er frá 23. október – 17. nóvember. Samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum þurfa veiðimenn að fara eftir þeim skilyrðum sem gilda um veiðar á villtum fuglum. Þeir sem stunda rjúpnaveiðar þurfa að hafa gilt veiðikort og bera það með sér á veiðum. Einnig þarf að hafa meðferðis skotvopnaskírteini.
Meira

Leikgleðin réði ríkjum – Leikfélag Sauðárkróks sýnir Bláa hnöttinn í Bifröst

Leikfélag Sauðárkróks heldur áfram þeim góða sið að bjóða upp á barnasýningu á haustin. Segja má um nýjustu sýninguna sem frumsýnd var 16. okt. að hún sé barnasýning í orðsins fyllstu merkingu því að af tuttugu og einu hlutverki eru 19 leikin af börnum. Óþarfi er að eyða mörgum orðum um frammistöðu þessara barna öðrum en þeim að hér eru stórleikarar framtíðarinnar á ferð. Allur leikur er öruggur og glaðlegur og eitt vill blaðamaður sérstaklega nefna en framsögn var undantekningalítið góð og kom það sér vel fyrir jafn heyrnardaufan mann og hann er blessaður.
Meira

Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi // Í dag kl. 17.00

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.
Meira

Opinn fundur um vegamál hjá Rótarý

Rótarýklúbbur Sauðárkróks lætur sér fátt óviðkomandi en í kvöld boðar hann til opins fundar kl. 18:00 – 19:00. Fundurinn fer fram á Kaffi Krók, neðri sal. Húsið opnar kl. 17:45.
Meira

Deiliskipulagstillaga fyrir Skagfirðingabraut 26 Sauðárkróki auglýst

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki. Um er að ræða lóð þar sem væntanleg viðbygging verknámshúss mun rýsa. Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026.
Meira

Húnaþing vestra hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Húnaþing vestra hlaut nýverið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. „Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif,“ segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.
Meira

Hálkan leynist víða og vissara að fara varlega

Vegfarendur á Norðurlandi vestra þurfa að hafa varann á sér þar sem víða er töluverð hálka og ekki gott að sjá hana – mögulega svokallaður svartís. Þannig er til að mynda mjög hált á Sauðárkróksbraut milli Varmahlíðar og Sauðárkróks og á Sauðárkróki og sömuleiðis er varað við hálku á Öxnadalsheiði. Þegar þetta er skrifað er unnið að mokstri á Þverárfjallsvegi en skaplegra færi er í Húnavatnssýslum þó þar megi eiga von á hálkublettum.
Meira

Opið hús í Höfðaskóla í dag

Fimmtudaginn 22. október verður opið hús í Höfðaskóla á Skagaströnd á milli kl. 15 og 17 og eru foreldrar, fjölskyldur og aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir í heimsókn! Á heimasíðu skólans segir að nemendur og starfsfólk skólans hafi tekið höndum saman og undirbúið fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast því skapandi og fjölbreytta starfi sem fram fer innan veggja skólans.
Meira

Spennandi leikir framundan í VÍS bikarnum

Í gær var dregið í 16-liða úrslit VÍS bikarsins í körfunni í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal en dregið var í beinni útsendingu á FB síðu KKÍ. Bæði meistaraflokkslið Tindastóls voru í pottinum og fengu strákarnir heimaleik gegn Stjörnunni en stelpurnar þurfa að sækja lið Hauka heim í Hafnarfjörðinn.
Meira

Börnin í Varmahlíðarskóla mynduðu bleika slaufu

Dags bleiku slaufunnar er minnst með ýmsum hætti í dag. Skemmtileg uppákoma var í Varmahlíðarskóla í morgun þegar leik-, grunn- og tónlistarskólabörn mynduðu bleika slaufu sem síðan var mynduð úr lofti.
Meira